Þingvallavatn 9. júlí 2017
- Þorkell Daníel Jónsson
- Jul 9, 2017
- 2 min read
Mæðgurnar steyptust á hausinn í vatnið

Veðurútlitið fyrir daginn var ekki ónýtt þegar við köstuðum flugunum í Þingvallavatn sunnan við Arnarfellið klukkan sjö á sunnudagsmorguninn. Hægur andvari blés að norðan og hiti var um átta gráðurnar. Það hlýnaði hratt því sólin skein og öðru hvoru datt í dúnalogn.

Minn betri helmingur, Guðrún, og Lilja dóttir mín voru með í för. Lilja bauð ekki ófrægari veiðimanni með í þessa veiðiferð en Danna, fyrirsætunni á veiðikortinu þetta sumarið. Við byrjuðum á austubakkanum og urðum ekki vör lengi vel. Veiðfélagarnir ákváðu þá að færa sig yfir á bakkann undir Arnarfellinu. Ég sagðist ætla að taka nokkur köst til viðbótar á austurbakkanum en kæmi fljótlega á eftir þeim. Hnýtti fluguna Ölmu Rún á tauminn og hana þáði rúmlega tveggja punda kuðungableikja. Þegar ekkert gerðist í dágóða stund skipti ég um flugu og set Teal and black undir. Hana þáði tveggja punda sílableikja. Aðrir silungar fúlsuðu við flugunni þannig að skipt var yfir í Svartan killer með kúluhaus og ægifagran bleikan hálskraga. Á þessa flugu tíndi ég upp fimm ágætar bleikjur til viðbótar.

Ég sá að undir Arnarfellinu blakti gulur Bónuspoki í flæðamálinu þannig að ég gaf mér að þau væru einnig í fiski. Sé síðan mér til undrunar að mæðgurnar taka að afklæðast þarna á bakkanum. Þótti mér það kæruleysi mikið að ætla að fara að sóla sig með fiskinn sveimandi eftir bakkanum fyrir utan. Skýringin á þessu hátterni mæðgnanna reyndist vera sú að báðar höfðu þær steypst á hausinn í vatnið. Þær eru svo samræmdar þessar elskur. Í Bónuspokanum reyndist vera rúmlega tveggja punda bleikja sem Guðrún veiddi. Hún setti síðan í aðra álíka bleikju sem hefur verið sílableikja því sú var silfruð að sjá, nú eða urriði. Hún náðist ekki á land því hún skrapp af önglinum við bakkann.
Þegar heim var haldið um hálf þrjú leitið var hitinn orðinn 18 gráður og um allan þjóðgarð var fólk að njóta veðurblíðunnar. Heima beið okkar að klára að filtera húsið. Í kvöldmat var auðvitað dýrindis Þingvallableikja.

Comments